Álfaborgir og Batman
Afi vakti mig kl 730. Þá var hann komin í gallan og tilbúin til að fara út á sjó! (nú veit ég hvað ofvirkni mín á eftir að gefa mér! Þegar ég verð gömul verð ég eins!! Gersamlega óstöðvandi og geri allt með áhlaupi... spurning bara hvað það verður.. ekki verða það veðrustöðvar!) Það var því ekkert annað en að drífa sig á lappir og slíta sig frá skrýtnu draumunum mínum. Mig langaði rosalega mikið að fara með honum út á sjó – það var svo mikil stilla að það hentaði mér fullkomnlega! ég myndi sem sagt ekki gubba út allan bátin, skjóta mig svo í fótinn með neyðarblisinnu og hringja eftir þyrlu landhelgisgæslunnar til að láta ná í mig!!!
EN sem sagt hálftíma eftir upprisu var ég farin af stað og er búin með mest allt nesið. Vegna veðurs varð ég að skella mér í pappírsvinnuna!!! Og það er ekki til notalegri staður en Skarðsvík til að dunda sér við eitthvað slíkt. Þetta er svona útlensk strönd á íslandi! hvít og klettar allt í kring. Ég henti mér í sandinn og fór yfir öll gögn dagsins. svo bara loka augunum og hlusta á sjóinn og fuglanna... Svo eru það myndirnar í hrauninnu! Maður er umkringdur álfaborg og tröllum sem hafa mætt sólinni og standa þar síðan. Það eru heilu sögurnar sem myndast í hrauninu, það er svo frábært :)
Sem sagt hefur dagurinn bara verið smúð! Einungis 3 fuglar og eitt lamb voru í lífshættu mín vegna þannig það er vel sloppið.
Ég fór áðan niður á bryggju þegar afi og hásetinn (báðir á níræðis aldri!) komu í land. Hélt fyrst að Batman sjálfur væri mættur í stýrishúsið.. en nei þá var það afi með þessi líka rokna flottu sólgleraugu (verðið ad skoða myndina vel :) ) Ef þetta er ekki að vera kúl þá veit ég ekki hvað!!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home